Alheilt hægra og hamrað vinstra. Mynd frá Dórótheu Sigríði.

Eyrnamörk á sauðfé

Eyrnamörk eða fjármörk Eyrnamörk eða fjármörk eru skurðir í eyru á fé til að skilgreina hvaða bændur eiga hvaða kindur. Fjármörk hafa fylgt fjárrækt allt frá landnámi. Það var nauðsynlegt að merkja fé sitt vegna samnýtingar afrétta og beitilanda. Um það vitna m.a. frásagnir í fornsögunum, og ákvæði í lögum...

Sundlaugamenning – Hefðin „að fara í sund“

Sundlaugamenning – Hversdagsmenning Langflestir Íslendingar alast upp við að fara reglulega í sund. Fólk stundar sundlaugar af ólíkum ástæðum en flestir líta á almenningslaugar sem hluta af grunnþjónustu sveitarfélaga og sem verðmæt almannagæði Sundlaugaferðir geta verið afþreying fjölskyldna, eða einstaklinga, sem fara í almenningslaugar á Íslandi í leit að hreyfingu,...

Netaveiðar á laxi í straumvatni

Hér er lýst verklagi við undirbúning og framkvæmd við lagnetaveiðar á laxi í straumvatni á Íslandi. Hér er einkum lýst hefðum við netaveiðar í jökulvatni í stórám á Suðurlandi, Ölfusá og Þjórsá.

Wrestling – Glíma

I’m bored of lying here in an ugly cave; it’s better at home in Helgafell where they have dancing and wrestling. Glíma has been a part of the life of Icelanders from the original settlement of the land until today, and it evolved in parallel with the multitude of changes...

Glíma

Leiðist mér að liggja hér í ljótum helli; betra er heima á Helgafelli að hafa þar dans og glímuskelli. Glíman hefur fylgt Íslendingum frá landnámi, til dagsins í dag og þróast samhliða þeim fjölmörgu breytingum sem samfélagið hefur gengið í gegnum. Ef marka má vísuna úr Draugahelli hér í upphafi,...

Sumardagurinn fyrsti

Sumardaginn fyrsta ber upp á fimmtudag á bilinu 19. – 25. apríl ár hvert. Á deginum er komu sumars fagnað en samkvæmt forníslensku tímatali markaði dagurinn upphaf hörpu, fyrsta mánaðar sumarmisseris.

Brauðtertur – brauðtertugerð

Brauðtertur hafa lengi átt fastan sess á veisluborði Íslendinga og mörgum þykja fagurlega skreyttar tertur, sem samanstanda af langskornu brauði með ljúffengu eggja- og majónessalati á milli, vera ómissandi í veisluna.

Þjóðtrú: Gengið á Helgafell á Snæfellsnesi

Gömul þjóðtrú segir að þeir sem ganga í fyrsta sinn á Helgafell í Helgafellssveit á norðanverðu Snæfellsnesi hafa kost á því að bera upp þrjár óskir þegar upp á fellið er komið. Skilyrðin eru að gengið sé í þögn upp á fellið og ekki sé litið til baka. Þegar upp...

Harmonikan – hljóðfæri gleði og dansmenningar

Frá lokum 19. aldar og fram yfir miðja 20. öld átti harmonikan sitt blómaskeið í dansmenningu landans. Þrátt fyrir meiri fjölbreytni í hljóðfæraskipan og dansmenningu nú á tímum lifir harmonikan góðu lífi meðal þeirra sem unna dans og gleði enda harmonikan nefnd hljóðfæri gleðinnar. Fjölmörg harmonikufélög eru starfandi um landið...

Gömlu dansarnir

Þeir dansar sem í daglegu tali eru nefndir „gömlu dansarnir“ voru eitt sinn nefndir „nýju dansarnir“. Um er að ræða paradansa eins og t.d. vals, ræl, polka, vínarkruss, masúrka og skottís.