Sundlaugamenning á Íslandi hefur verið tilnefnd til UNESCO á lista yfir óáþreifanlegan menningararf mannkyns.
Nú hefur menningar-og viðskiptaráðherra, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, tilnefnt sundlaugamenningu á Íslandi til UNESCO, á lista yfir óáþreifanlegan menningararf mannkyns. Umsóknin fór frá ráðuneytinu þann 25. mars.
Tilnefningin verður nú tekin til skoðunar hjá viðkomandi nefnd hjá UNESCO, það ferli tekur tölverðan tíma eða 18 mánuði.
Við viljum þakka innilega fyrir allan þann stuðning sem að verkefnið hefur fengið á undanförnum mánuðum. Það hefði aldrei verið hægt að klára verkefnið nema af því að svo margir lögðu því lið, sýndu stuðning sinn í verki og greiddu því leið.
Við viljum þakka þeim sem hafa tekið á móti okkur, öllum okkar góðu gestgjöfum um land allt sem leyfðu okkur að koma og segja frá og spjalla um sundlaugamenningu. Öllum þeim góðu gestum og sundlaugaunnendum, sem komu, lögðu fram sínar skoðanir og spurningar, álit og viðhorf og deildu minningum sínum um sundlaugamenningu færum við sérstakar þakkir. Einnig viljum við þakka þeim sem hafa deilt með okkur sundlaugasögum sínum, sent okkur fallegar og eftirminnanlegar frásagnir af reynslu og viðhorfum gagnvart sundlaugamenningu.
Innilegar þakkir fær starfsfólk Stofnunnar Árna Magnússonar og Þjóðminjasafns Íslands sem studdi við verkefnið í hvívetna. Þórdís Erla Ágústsdóttir, ljósmyndari fær innilegar þakkir fyrir sitt framlag. Reykjavíkurborg og starfsfólk hennar veitti ómetanlegan stuðning við tilnefninguna og við þökkum þeim innilega fyrir samstarfið. Forseta Íslands Guðna Th. Jóhannessyni og starfsfólki hans færum við sérstakar þakkir fyrir hlýhug og veittan stuðning. Sundsamband Íslands og Ungmennafélag Íslands fá þakkir fyrir stuðning þeirra og framlag. Einnig viljum við þakka starfsmönnum menningar- og viðskiptaráðuneytisins sem lögðu sig fram við að aðstoða og leiðbeina. Og að lokum okkar dýpstu þakkir til allra þeirra sveitarfélaga, félagasamtaka, hópa og einstaklinga sem hafa stutt verkefnið, sent okkur sundlaugasögur sínar og stuðningsyfirlýsingar, spurt krefjandi spurninga og hvatt til dáða, takk fyrir! Þetta hefði ekki orðið að veruleika án ykkar.
Tilnefning hefða á yfirlitsskrá UNESCO um óáþreifanlegan menningararf mannkyns gefur hverri aðildarþjóð tækifæri til að rýna í sínar menningarerfðir, hugsa um tilgang þeirra og hvaða merkingu þær hafa. Sundlaugamenning á Íslandi hefur ólíka merkingu fyrir þá sem hana stunda, þó eru viss lykilstef sem koma fram aftur og aftur þegar rætt er um hana t.d. samfélag, almannagæði, lýðheilsa, slökun, félagsleg heilsa, vellíðan og leikur. Tilnefning sem þessi gefur okkur tækifæri á að rýna í hvaða merkingu sundlaugamenningin hefur fyrir okkur. Vissar skyldur fylgja því að koma lifandi hefð alla leið inná yfirlitsskrá UNESCO, að við sem samfélag stöndum vel að varðveislu þessarrar lifandi hefðar til framtíðar.
Þú getur lesið þér til um samning UNESCO frá 2003 um varðveislu menningarerfða hér: https://unesco.is/wp-content/uploads/2019/12/SAMNINGUR-UM-VARÐVEISLU-MENNINGARERFÐA.pdf